Myndir úr gróðurhúsinu.

Jæja þá er búið að smíða gólf og gróðursetja heilan helling.

Keyptum vínvið, 2 tómatplöntur, 2 gúrkuplöntur, eina paprikku  og slatta af salati.

Svo var búið að sá út basil og origanó, einnig er ég með tvær einhverjar fléttur sem eru góðar í salat. Við erum nú þegar byrjuð að tína af og borða af salatinu, ruccola, rautt og grænt salat voðalega gorr.

Það besta er að fyrir utan allan gróðurinn er búið að setja upp borð og stóla þannig að hægt er að tilla sér og njóta gróðursins, það liggur við að hægt´sé að sjá gúrku og tómatplönturnar vaxa.

IMG_4569

IMG_4572

Gróðurhúsið í kvöldsólinni.

IMG_4578

Grænar baunir byrjaðar að gægjast upp Grin

IMG_4570

Kryddjurtir og "fléttan"

IMG_4573

Vínviðurinn.

Við erum í sumarfríi eins og er og njótum þess í góða veðrinu að dunda okkur heima við. Fóru í útilegu síðastliðna helgi. Leigðum tjaldvagn og fórum á Snæfeldnes í veiðiferð vorum við Hraunfjarðarvatn alveg yndislegt, sól og blíða allan tíman. Fórum þrjár fjölskyldur saman, Anna og Elli og börn og María og Óli og börn, þannig að það var mikið húllum hæ og nokkrir fiskar W00t

Gummi er farinn í aðra veiðiferð með Ella, þeir fóru í veiðivötn, myndavélin fór með þannig að myndir úr útilegunni verða í næsta bloggi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Olga og fjölskylda.

Gaman að sjá hvað þú nýtur gróðurhússins. Kem örugglega og heimsæki þig einhverja helgina. Er að skipta um vinnu og verð ekki svona örþreytt alltaf.

Hlakka til að sjá ykkur á ættarmótinu.

Kveðja, Palla frænka.

Pálína (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 19:37

2 identicon

Hæ hæ.

Rosalega flott gróðurhús hjá ykkur. Hvar pantar maður svona? Ég var nefninlega að spá í að fá mér gróðurhús á Ísafjörð.

Kveðja. Sigríður Inga.

Sigríður Inga Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband