Loksins loksins !!

Einhverjar kvartanir hafa borist fjöldskyldunni um að ekki væri nóg um nýjar fréttir hér á blogginu. En svona er þetta nú bara svosem ekkert merkilegt að gerast, lífið gengur bara sinn vanagang með vinnu, skóla, borða og sofa.

En um daginn var nú smá uppákoma, enn einn ránfuglinn fékk gistingu og mat á dýralæknastofuni.

Ugla og Fálki 003

Ugla og Fálki 002

Vakti hún mikla lukku hjá bæði stórum og smáum. En svo dó hún því miður nokkrum dögum seinna. En svona er þetta nú og þýðir ekki að fást um það. Hún hafði víst flogið á einkvað og náði sé ekki aftur.

Einn laugardaginn fóru Bjarni Valur, Valdís María og Gummi í skólann í laufabrauðs- og piparkökubakstur (mamman upptekin í vinnu) En þar sló pabbinn algjörlega í gegn hjá öllum mömmunum sem voru mættar á svæðið, sérstaklega voru þær hrifnar af hversu klár hann var í laufabrauðsskurðinum Wink 

Annars er nú bara verið að jólaskreyta svona smá. Verður ekkert mikið í ár þar sem við förum jú til USA bráðlega, en smá skraut verðum við nú að hafa. Já það eru bara tvær vikur til brottfarar og spennan stígur frá degi til dags og það styttist í að töskurnar verði teknar fram og byrjað að pakka júbííí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn!  Komið þið með laufabrauð, eða eigum við bara að borða það á Hellu á þrettándanum? Krakkar er mamma ykkar búin að elda handa ykkur ugluna? Hahaha! Skammastu þín Kristín, nei það var leiðinlegt að Uglan dó. Ég hef bara séð uglur í dýragörðum, hef greinilega verið lítið í sveitinni.
Bless bless, veriði hress, see you soon, KBB.

Kristín Birna (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 03:39

2 identicon

Ætli við borðum ekki bara laufabrauðið í afmælisveislunni á morgunn. Það verður sko humar í forrétt og svo gæs í aðal, nammi namm, hvað ætli Kristín verði með á aðfangardagskvöld ??? Það verður nú að vera einhvað alveg alveg amerískt. 

Olga (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband